75 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands
75 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands
Kæri félagi,
Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli í ár. Í tilefni af stórafmælinu langar okkur að bjóða þér og öðrum félagsmönnum aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins til veislu.
Hinn landskunni tónlistarmaður Jón Ólafssonmun stýra veislunni og skemmta með liðsinni söngkonunnar ljúfu Hildar Völu Einarsdóttur. Saman munum við njóta góðra veitinga, gleðjast í hópi góðra vina og fagna þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin með þínum dýrmæta stuðningi.
Okkur hjá Krabbameinsfélaginu þætti afar vænt um ef þú sæir þér fært að fagna með okkur og auðvitað er þér velkomið að taka með þér gest.
Afmælisveislur Krabbameinsfélagsins verða haldnar á fjórum stöðum á landinu, þú velur þann stað sem hentar þér best:
• Reykjanesbær - Hljómahöllin 2. september
• Selfoss - Sviðið 3. september
• Akureyri - Hof 8. september
• Fáskrúðsfjörður - Skrúður 14. september
Við hlökkum til að eiga ánægjulega stund með þér.