2016

Skýrsla stjórnar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis fyrir árið 2016

 

Félagið er stofnað 21. nóvember 1952.

Skrifstofa: Glerárgötu 24, 600, Akureyri. s. 461 1470,

Netfang: kaon@simnet.is   Skráðir félagsmenn árið 2016 eru 1417.

 

1.0   Stjórn og starfsmenn.

 

1.1    Stjórn

Eftirtaldir aðilar skipa stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis

Hlíf Guðmundsdóttir, formaður

Dóróthea Jónsdóttir, varaformaður

Jón Þ. Óskarsson, gjaldkeri

Friðrik Vagn Guðjónsson, meðstjórnandi

Lilja Sverrisdóttir, meðstjórnandi

Guðbjörg Antonsdóttir, ritari

Anna Ólafsdóttir, meðstjórnandi

Hólmfríður Kristjánsdóttir, meðstjórnandi

Ólöf Elfa Leifsdóttir, meðstjórnandi

 

1.2    Skrifstofa KAON

Skrifstofan er staðsett í leiguhúsnæði að Glerárgötu 24 á Akureyri og er opin  mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 13:30 til 16, auk þess sem boðið er upp á viðtalstíma utan opnunartíma á skrifstofunni. Símatími er þessa sömu daga frá kl. 10-12. Starfsmenneru þrír og skipta á milli sín 90% stöðu. Þorbjörg Ingvadóttir framkvæmdastjóri, Jóhanna Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur og Halldóra Björg Sævarsdóttir textílkennari, auk þess sem Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari starfar í nánum tengslum við félagið.

Frá og með 1.september urðu breytingar þar sem opnunartíminn breytist og er þá opið frá mánudegi til fimmtudags frá kl 13:00-16:00 og símatími er á sama tíma. Þorbjörg Ingvadóttir lét af störfum og Halldóra Björg Sævarsdóttir framhaldsskólakennari tók við framkvæmdastjórastöðunni í 50% starfi og Jóhanna Júlíusdóttir lét af störfum og Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur tók við hennar starfi og er með 50% stöðu.

 

2.0 Fundir

2.1 Stjórnarfundir

Stjórnin hélt 8 bókaða stjórnarfundi á árinu 2016.

 

2.2    Aðalfundur KAON

Aðalfundur félagsins var haldinn á Akureyri 28.apríl 2016. Stjórn lagði fram tillögu um að árgjald til félagsins yrði 3300 kr. og var sú tillaga samþykkt. Þær breytingar urðu á stjórn félagsins að Sigríður Jónsdóttir og Klara Arnbjörnsdóttir gengu úr stjórn og Ólöf Elfa Leifsdóttir og Dóróthea Jónsdóttir gengu í stjórn.

 

2.3 Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands

KAON átti tvo fulltrúa á aðalfundi KÍ að þessu sinni.

 

2.3    Samráðsfundir

Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna svæðaskrifstofa KÍ.

2.5 Formannafundur

KAON átti tvo fulltrúa á formannafundi KÍ árið 2016.

 

3.0 Starfsemin

Mjög öflug starfsemi er rekin á vegum og í tengslum við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.Skráðar heimsóknir á skrifstofu KAON á árinu 2016 hafa aukist til muna og eru um 900. Þetta eru að langmestu leyti einstaklingar sem sækja Opið handavinnuhús, slökun, jóga og liðkandi æfingar, karlahittingurinn auk fræðslufunda og námskeiða sem haldin eru á vegum KAON.

Í hverri viku sækja u.þ.b. 20 einstaklingar samveru á Keramikloftinu,

Þannig að þeir sem sóttu fjölbreytta þjónustu á vegum félagsins árið 2016 eru u.þ.b. 1500 einstaklingar.

 

3.1  Fræðsla/fundir o.fl.

Starfsmenn sinna ýmiskonar fræðslu sem tengist forvörnum, stuðningi og kynningu á starfsemi félagsins, fyrir hópa, einstaklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Opin dagur var haldin í tilefni af Bleika deginum og Jólakransagerð fyrir ungmenni og aðstandendur.

 

3.2   Endurhæfing

KAON býður bæði krabbameinssjúkum og langveikum upp á ókeypis jóga og slökun alla þriðjudaga í húsnæði félagsins í samstarfi við Sigrúnu Jónsdóttur sjúkraþjálfara auk þess að vera með  

  • Vatnsleikfimi í innilaug Sundlaugar Akureyrar
  • Einstaklingsþjálfun, viðtöl og ráðleggingar

 

3.3       Opið handavinnuhús

Opið handavinnuhús er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13-16 og hefur verið mjög vel sótt. Umsjón hefur Halldóra Björg Sævarsdóttur textílkennari og er boðið upp á samveru þar sem fólk getur komið með handavinnu og spjallað saman yfir kaffibolla. Auk þess sem sérstök fræðsla um valin verkefni hefur verið nokkrum sinnum í vetur í tengslum við Opna húsið.

 

3.4  Keramikloftið

Á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, keramik o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel  sótt. KAON hefur stutt við þessa starfsemi með ýmsu móti frá byrjun.

 

3.5 Karlahópur

Þeir hittast alla laugardaga og spjalla og eru með fræðslufundi.

 

 3.6  Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga

Skráð viðtöl og símtöl eru um 100. Starfsmenn hafa frá árinu 1998 haldið utan um fjölda viðtala á skrifstofunni.

 

3.7  Stoma

Stomasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

 

3.8   Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík.  

KAON greiðir nú reikninga fyrir afnot af íbúðum og dvöl á sjúkrahóteli að fullu og er þetta alltaf verulega stór útgjaldaliður hjá félaginu.

 

4.0  Tekjur/ Fjáraflanir

Helstu tekjur félagsins fyrir utan rekstarstyrk frá KÍ sem greiðir helming af launum starfsmanna og verkefnisstyrk sem gerir okkur kleift m.a. að halda námskeið fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur, eru félagsgjöldin og styrkir sem félaginu bárust frá félagasamtökum og einstaklingum á árinu. Sú velvild og stuðningur sem allir þessir fjölmörgu aðilar sýna okkur er ómetanlegur og gerir okkur kleift að styðja á margvíslegan hátt við bakið á þeim íbúum á okkar félagssvæði sem greinast með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Öllum þessum aðilum færum við innilega þakkir. Án þessa stuðnings væri þetta ekki mögulegt.

 

5.0  Húsnæði

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Salurinn rúmar um 25-30 manns í sæti, auk þess sem rýminu er skipt þannig að auðvelt er að eiga notalegt spjall við einstaklinga á fleiri en einum stað.

 

6.0 Samskipti við fjölmiðla

Starfsmenn hafa átt mjög góð samskipti við fjölmiðla á félagssvæðinu og hafa bæði birst viðtöl í Dagblöðum og tímaritum, auk þess sem allir starfsmenn hafa komið oftar en einu sinni í sjónvarpsviðtöl vegna ýmissa viðburða sem tengjast t.d. starfsemi félagins auk þess að vekja athygli á ýmsu sem hefur verið ofarlega á baugi í almennri umræðu í þjóðfélaginu. N4 sjónvarp hefur verið okkur sérlega vinsamlegt með að kynna starfsemi okkar og koma til móts við kostnað vegna auglýsinga t.d. í Sjónvarpsdagskránni. Færum við þeim bestu þakkir fyrir.