2015

Skýrsla stjórnar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis fyrir árið 2015

 

Félagið er stofnað 21. nóvember 1952.

Skrifstofa: Glerárgötu 24, 600, Akureyri. s. 461 1470,

Netfang: kaon@simnet.is   Félagsmenn árið 2015 eru:  1012

 

1.0   Stjórn og starfsmenn.

 

1.1    Stjórn

Eftirtaldir aðilar skipa stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis

Hlíf Guðmundsdóttir, formaður

Friðrik Vagn Guðjónsson, varaformaður

Jón Þ. Óskarsson, gjaldkeri

Klara Arnbjörnsdóttir, ritari

Sigríður Jónsdóttir, meðstjórnandi

Lilja Sverrisdóttir, meðstjórnandi

Guðbjörg Antonsdóttir, meðstjórnandi

Anna Ólafsdóttir, meðstjórnandi

Hólmfríður Kristjánsdóttir, meðstjórnandi

 

1.2    Skrifstofa KAON

Skrifstofan er staðsett í leiguhúsnæði að Glerárgötu 24 á Akureyri og er opin  mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 13:30 til 16, auk þess sem boðið er uppá viðtalstíma utan opnunartíma á skrifstofunni. Símatími er þessa sömu daga frá kl. 10-12.

Starfsmenneru þrír og skipta á milli sín 90% stöðu. Þorbjörg Ingvadóttir framkvæmdastjóri, Jóhanna Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur og Halldóra Björg Sævarsdóttir textílkennari, auk þess sem Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari starfar í nánum tengslum við félagið.

 

2.0 Fundir

2.1 Stjórnarfundir

Stjórnin hélt 5 bókaða stjórnarfundi á árinu 2015.

 

2.2    Aðalfundur KAON

Aðalfundur félagsins var haldinn á Akureyri 27.apríl 2015.  Stjórn lagði fram tillögu um að árgjald til félagsins yrði 3300 kr. og var sú tillaga samþykkt. Engar breytingar urðu á stjórn félagsins að þessu sinni.

 

2.3 Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands

KAON átti tvo fulltrúa á aðalfundi KÍ að þessu sinni.

 

2.3    Samráðsfundir

Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna svæðaskrifstofa KÍ.

 

2.5 Formannafundur

KAON átti þrjá fulltrúa á formannafundi KÍ árið 2015.

 

3.0 Starfsemin

Mjög öflug starfsemi er rekin á vegum og í tengslum við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.Skráðar heimsóknir á skrifstofu KAON á árinu 2015 eru svipaðar og undanfarin ár eða tæplega 450. Þetta eru að langmestu leyti einstaklingar sem sækja Opið handavinnuhús, slökun, jóga og liðkandi æfingar auk fræðslufunda sem haldnir eru á vegum KAON. Einnig viljum við nefna að sl. haust var stofnaður sérstakur karlahópur sem hittist alla laugardaga í húsnæði félagsins.

Í hverri viku sækja u.þ.b. 20 einstaklingar samveru á Keramikloftinu,

Þannig að þeir sem sóttu fjölbreytta þjónustu á vegum félagsins árið 2015 eru u.þ.b. 1300 einstaklingar.

 

3.1  Fræðsla/fundir o.fl.

Starfsmenn sinna ýmiskonar fræðslu sem tengist forvörnum, stuðningi og kynningu á starfsemi félagsins, bæði til hópa og einstaklinga.

 

3.2  Endurhæfing

Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari hefur boðið bæði krabbameinssjúkum og langveikum upp á ókeypis jóga og slökun alla mánudaga í húsnæði félagsins, auk þess að vera með  

  • Vatnsleikfimi í innilaug Sundlaugar Akureyrar
  • Styrktarþjálfun fyrir hópa í Eflingu
  • Einstaklingsþjálfun, viðtöl og ráðleggingar

 

3.3  Opið handavinnuhús

Opið handavinnuhús er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13-17 og hefur verið mjög vel sótt. Umsjón hefur Halldóra Björg Sævarsdóttur textílkennari og er boðið upp á samveru þar sem fólk getur komið með handavinnu og spjallað saman yfir kaffibolla. Auk þess sem sérstök fræðsla um valin verkefni hefur verið nokkrum sinnum í vetur í tengslum við Opna húsið.

           

3.4  Keramikloftið

Á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, keramik o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel  sótt. KAON hefur stutt við þessa starfsemi með ýmsu móti frá byrjun.

 

3.5  Karlahópur

Ákveðið var að stofna sérstakan karlahóp sl. haust og hittast þeir alla laugardaga og spjalla og eru með fræðslufundi.

 

 3.6  Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga

Skráð viðtöl og símtöl eru 108. Starfsmenn hafa frá árinu 1998 haldið utan um fjölda viðtala á skrifstofunni.

 

3.7  Stoma

Stomasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

 

3.8  Líf og loft

Líf og loft eru samtök lungnasjúklinga. Þau hafa fundað í húsnæði okkar.

 

3.9  Göngum saman

Göngum saman samtökin hafa verið að hittast í húsnæði félagsins.

 

4.0   Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík.  

KAON greiðir nú reikninga fyrir afnot af íbúðum og dvöl á sjúkrahóteli að fullu og er þetta alltaf verulega stór útgjaldaliður hjá félaginu.

 

5.0  Tekjur/Fjáraflanir

Helstu tekjur félagsins fyrir utan rekstarstyrk frá KÍ sem greiðir helming af launum starfsmanna og verkefnisstyrk sem gerir okkur kleift m.a. að halda námskeið fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur, eru félagsgjöldin og styrkir sem félaginu bárust frá félagasamtökum og einstaklingum á árinu. Sú velvild og stuðningur sem allir þessir fjölmörgu aðilar sýna okkur er ómetanlegur og gerir okkur kleift að styðja á margvíslegan hátt við bakið á þeim  íbúum á okkar félagssvæði sem greinast með krabbamein.

Öllum þessum  aðilum færum við innilega þakkir. Án þessa stuðnings væri þetta ekki mögulegt.

 

6.0  Húsnæði

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Miklar endurbætur voru gerðar á húsnæðinu og salurinn okkar rúmar nú um 25-30 manns í sæti, auk þess sem rýminu er skipt þannig að auðvelt er að eiga notalegt spjall við einstaklinga á fleiri en einum stað og segja má að vel hafi tekist til með endurbætur.

 

7.0  Samskipti við fjölmiðla

Starfsmenn hafa átt mjög góð samskipti við fjölmiðla á félagssvæðinu og hafa bæði birst viðtöl í Dagblöðum og tímaritum, auk þess sem allir starfsmenn hafa komið oftar en einu sinni í sjónvarpsviðtöl vegna ýmissa viðburða sem tengjast t.d. starfsemi félagins auk þess að vekja athygli á ýmsu sem hefur verið ofarlega á baugi í almennri umræðu í þjóðfélaginu. N4 sjónvarp hefur verið okkur sérlega vinsamlegt með að kynna starfsemi okkar og koma til móts við kostnað vegna auglýsinga t.d. í Sjónvarpsdagskránni. Færum við þeim bestu þakkir fyrir.