2014

Skýrsla stjórnar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis fyrir árið 2014

 

Félagið er stofnað 21. nóvember 1952.

Skrifstofa: Glerárgötu 24, 600, Akureyri. s. 461 1470,

Netfang: kaon@simnet.is  Skráðir félagsmenn árið 2014 eru:  1360

 

1.0   Stjórn og starfsmenn.

 

1.1    Stjórn

Eftirtaldir aðilar skipa stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis

Hlíf Guðmundsdóttir, formaður

Friðrik Vagn Guðjónsson, varaformaður

Jón Þ. Óskarsson, gjaldkeri

Klara Arnbjörnsdóttir, ritari

Sigríður Jónsdóttir, meðstjórnandi

Lilja Sverrisdóttir, meðstjórnandi

Guðbjörg Antonsdóttir, meðstjórnandi

Anna Ólafsdóttir, meðstjórnandi

Hólmfríður Kristjánsdóttir, meðstjórnandi

 

1.2    Skrifstofa KAON

Skrifstofan er staðsett í leiguhúsnæði að Glerárgötu 24 á Akureyri og er opin  mánudaga og þriðjudaga frá kl. 13 til 16, auk þess sem boðið er uppá viðtalstíma utan opnunartíma á skrifstofunni.Simatími er alla miðvikudaga frá kl. 10-12.

Starfsemenneru þrír og skipta á milli sín 90% stöðu.  Þorbjörg Ingvadóttir framkvæmdastjóri, Jóhanna Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur og Halldóra Björg Sævarsdóttir textílkennari, auk þess sem Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari starfar í nánum tengslum við félagið.

 

2.0 Fundir

2.1 Stjórnarfundir

Stjórnin hélt 5 bókaða stjórnarfundi á árinu 2014.

 

2.2    Aðalfundur KAON

Aðalfundur félagsins var haldinn á Akureyri 20.maí 2014.  Stjórn lagði fram tillögu um að árgjald til félagsins yrði óbreytt frá síðasta ári, eða 3000 kr. og var sú tillaga einnig samþykkt. Engar breytingar urðu á stjórn félagsins að þessu sinni.

 

2.3 Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands

Aðalfundur KÍ var haldinn 10. maí og fulltrúi KAON á þeim fundi var Friðrik Vagn Guðjónsson auk þess sem Jóhanna Júlíusdóttir og Halldóra Björg Sævarsdóttur sátu fundinn.

 

2.3    Samráðsfundir

Starfsmenn sóttu tvo samráðsfundi starfsmanna svæðaskrifstofa KÍ.

 

2.5 Formannafundur

Formannafundur KÍ var haldinn á Akureyri 4. október  og sá KAON um alla umgjörð er varðaði fundinn.

 

3.0 Starfsemin

Mjög öflug starfsemi er rekin á vegum og í tengslum við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Skráðar heimsóknir á skrifstofu KAON á árinu 2014 eru 465. Þetta eru að langmestu leyti einstaklingar sem sækja Opið handavinnuhús, slökun, jóga og liðkandi æfingar auk  fræðslufunda sem haldnir eru á vegum KAON. Má þar t.d. nefna námskeiðið Gott útlit betri líðan, heilsuréttarnámskeiðið: Sætt án samviskubits, námskeið í Orkeringu o.fl.

Í hverri viku sækja á u.þ.b. 20 einstaklingar samveru á Keramikloftinu, og skráð viðtöl (bæði komur á skrifstofu og símaviðtöl) eru skráð 114 á árinu.

Þannig að þeir sem sóttu fjölbreytta þjónustu á vegum félagsins árið 2014 eru u.þ.b. 1340 einstaklingar.

Kostnaður félagsins vegna aukinnar starfsemi og stuðnings við krabbameinsgreinda og fjölskyldur þeirra hefur aukist verulega á milli áranna 2013 og 14 og munar þar tæplega 1.000.000 kr. á milli ára. Greiðsla v. dvalarkostnaðar sjúklinga í íbúðum Krabbameinsfélagsins hefur líka aukist verulega milli ára og er nú rétt tæplega ein milljón króna miðað við rúmlega 400.000 kr. árið 2013.

 

3.1  Fræðsla/fundir o.fl.

Starfsmenn sinna ýmiskonar fræðslu sem tengist forvörnum, stuðningi og kynningu á starfsemi félagsins, bæði til hópa og einstaklinga.

 

3.2   Endurhæfing

Sigrún Jónsdóttir sjúkraþjálfari hefur boðið bæði krabbameinssjúkum og langveikum upp á ókeypis Hugleiðslu og slökun alla þriðjudaga í húsnæði félagsins, auk þess að vera með  

  • Vatnsleikfimi í innilaug Sundlaugar Akureyrar
  • Styrktarþjálfun fyrir hópa í Eflingu
  • Einstaklingsþjálfun, viðtöl og ráðleggingar

 

3.3       Opið handavinnuhús

Opið handavinnuhús er í boði alla fimmtudaga frá kl. 13-17 og hefur verið mjög vel sótt.  Umsjón hefur  Halldóra Björg Sævarsdóttur textílkennari og er boðið upp á samveru þar sem fólk getur komið með handavinnu og spjallað saman yfir kaffibolla.Auk þess sem sérstök fræðsla um valin verkefni hefur verið nokkrum sinnum í vetur í tengslum við Opna húsið.

           

3.4  Keramikloftið og Punkturinn

Á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, keramik o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel  sótt. KAON hefur stutt við þessa starfsemi með ýmsu móti frá byrjun.

Á Punktinum getur fólk komið alla fimmtudagsmorgna og nýtt þá aðstöðu sem þar er í boði og fengið aðstoð og leiðbeiningar t.d. við saumaskap, útskurð, bókband o.m.fl.

 

 3.5  Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga

Skráð viðtöl og símtöl eru 114.. Starfsmenn hafa frá árinu 1998 haldið utan um fjölda viðtala á skrifstofunni.

 

3.6  Stoma

Stomasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.

 

3.7  Líf og loft

Líf og loft eru samtök lungnasjúklinga. Þau hafa fundað í húsnæði okkar.

 

3.8   Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík.  

Um áramótin 2014/15 höfðu félaginu borist reikningar vegna dvalar í íbúðum Krabbameinsfélagsin vegna 533 gistinátta. Hver sólarhringur kostar 1.850 kr. og greiddi félagið fyrri hluta ársins 75% af hverjum reikningi, en á haustdögum ákvað stjórn KAON að greiða þessa reikninga að fullu.

 

4.0  Tekjur/ Fjáraflanir

Helstu tekjur félagsins fyrir utan rekstarstyrk frá KÍ sem greiðir helming af launum starfsmanna og verkefnisstyrk sem gerir okkur kleift m.a. að halda námskeið fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur, eru félagsgjöldin og styrkir sem félaginu bárust frá félagasamtökum og einstaklingum á árinu. Sú velvild og stuðningur sem allir þessir fjölmörgu aðilar sýna okkur er ómetanlegur og gerir okkur kleift að styðja á margvíslegan hátt við bakið á þeim  íbúum á okkar félagssvæði sem greinast með krabbamein.

Öllum þessum  aðilum færum við innilega þakkir. Án þessa stuðnings væri þetta ekki mögulegt.

 

5.0  Húsnæði

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að  Glerárgötu 24. Miklar endurbætur voru gerðar á húsnæðinu og salurinn okkar rúmar nú um 25-30 manns í sæti, auk þess sem rýminu er skipt þannig að auðvelt er að eiga notarlegt spjall við einstaklinga á fleiri en einum stað og segja má að vel hafi tekist til með endurbætur.

 

6.0 Samskipti við fjölmiðla

Starfsmenn hafa átt mjög góð samskipti við fjölmiðla á félagssvæðinu og hafa bæði birst viðtöl í Dagblöðum og tímaritum, auk þess sem allir starfsmenn hafa komið oftar en einu sinni í sjónvarpsviðtöl vegna ýmissa viðburða sem tengjast t.d. starfsemi félagins auk þess að vekja athygli á ýmsu sem hefur verið ofarlega á baugi í almennri umræðu í þjóðfélaginu. N4 sjónvarp hefur verið okkur sérlega vinsamlegt með að kynna starfsemi okkar og koma til móts við kostnað vegna auglýsinga t.d. í Sjónvarpsdagskránni. Færum við þeim bestu þakkir fyrir.