Fjarnámskeið: Þjálfun svengdarvitundar
12. nóvember kl. 13:00-14:30
Rafrænir viðburðir
Markmið þjálfun svengdarvitundar er að auka meðvitund um svengd og seddu, hlusta betur á líkamann og verða sáttari við matarvenjur sínar, samhliða því að þær verða heilbrigðari.
Ekki er fjallað um innihald, hollustu eða óhollustu matar en með því að æfa sig í þessari nálgun er liklegra að við veljum hollari fæðu.
Námskeiðið verður í þremur hlutum fimmtudagana 12. til 26. nóvember kl. 13:00 til 14:30 og fer fram á netinu. Ekkert þátttökugjald.
Leiðbeinandi er Harpa Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu.
Skráning og nánari upplýsingar á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.