Fjarnámskeið: Bjargráð við kvíða

Hvernig má koma auga á streituviðbrögð og langvarandi kvíða? Hagnýt bjargráð til að takast á við kvíða og streitu í daglegu lífi. 

Flestir upplifa kvíða á einhverjum tímapunkti í tengslum við krabbameinsgreiningu,  krabbameinsmeðferð eða eftirfylgni. Kvíði er í sjálfu sér ekki hættulegur, en honum geta fylgt ýmis óþægileg einkenni. Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. 

Námskeiðið er í tveimur hlutum, miðvikudaganna 26. ágúst og og 2. september kl. 14:00 – 15:30 og er fjarnámskeið. Ekkert þátttökugjald.

Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. 

Umsagnir um námskeiðið:

„Gott námskeið sem skerpir á skilningi á kvíða og hvernig hægt er að bregðast við þessum einkennum"

„Mjög gagnlegt og gott fyrir mig"

 

Hægt verður að sitja námskeiðið í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, til að skrá sig má senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma: 461-1470.