Fjarnámskeið: Núvitund og samkennd

Á námskeiðinu verða kenndar ýmsar grunnæfingar í núvitund og samkennd, auk fræðslu, umræðna og heimaverkefna.

Farið verður meðal annars yfir leiðir sem gefa af sér meiri mildi og skilning í eigin garð þegar eitthvað bjátar á, í stað gagnrýni.

Námskeiðið er fjarnámskeið, vikulega í fimm skipti , miðvikudagana 28. október til 25. nóvember kl. 14:00 - 16:00

Leiðbeinandi er Anna Dóra Frostadóttir, klínískur sálfræðingur. 

Nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald. 

 

,,Fann bara að þetta var bara nákvæmlega það sem ég þurfti sem aðstandandi . Að vita að Allt sé í lagi að líða . Takk fyrir mig"!

,,Ef þér finnst þú vera einn/ein með áhyggjur af veikindum þínum, barns, maka eða annars aðstandanda þá var þessi samvera yndisleg og gefandi. Styðjandi á allan hátt þó stundum veki upp tilfinningar",

,,Algengt vandamál sem mörg okkar kannast við en hafa ekki þekkingu né tól til að nýta sér í að ná bata. Það er ekki nóg að fara bara í krabbameinsmeðferð heldur þarf að hjálpa sér að verða betri þú út restina af lífinu. Þar kemur þetta námskeið sér vel".

 

Hægt verður að sitja námskeiðið í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, til að skrá sig má senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma: 461-1470.