Húsavík - viðtöl

Viðtöl hjá ráðgjafa á Húsavík 12. febrúar

Vantar þig stuðning?

Ráðgjafi frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður á Húsavík, fimmtudaginn 12. febrúar. Viðtölin verða í Húsnæði Framsýn, Garðarsbraut 26.

Viðtölin eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust.

Við hvetjum einstaklinga í nágrannar sveitarfélögunum til að nýta sér einnig þjónustuna.

Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is

Verkefnið er styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins