Húsavík - Viðtöl hjá ráðgjafa og erindi

Húsavík - Viðtöl hjá ráðgjafa

Vantar þig stuðning?

Ráðgjafi frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður á Húsavík, fimmtudaginn 15. október. Viðtölin verða í Húsnæði Framsýn, Garðarsbraut 26.

Viðtölin eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust. Við hvetjum einstaklinga í nágrannar sveitarfélögunum til að nýta sér einnig þjónustuna.

Til að bóka viðtal er hægt að hringja í félagið í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is

Næstu dagsetningar eru:  5. nóvember og 10. desember.

 

Aðstandendur í veikindum - hlutverk sem enginn velur

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður upp á erindi fyrir aðstandendur.

Aðstandendur í veikindum - hlutverk sem enginn velur.

Ráðgjafi krabbameinsfélagsins, Jenný Valdimarsdóttir hjúkrunarfræðingur fer yfir þær áskoranir sem því fylgir og leiðir til að takast á við þær.

Tímasetning: fimmtudaginn 15. október kl. 17:00.

Staðsetning: Húsnæði Framsýn, Garðarsbraut 26.

 

 

Verkefnið er styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins