Jafningjastuðningur fyrir konur

Jafningjastuðningur fyrir konur

Nýr hópur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa lokið meðferð á seinustu mánuðum. Hópurinn mun hittast tvisvar sinnum í mánuði á skrifstofu félagsins, Glerárgötu 34, kl. 16:15.

Fyrsti hittingur er fimmtudaginn 21. ágúst og hvetjum við allar sem hafa áhuga á að taka þátt til að mæta.

Tækifæri fyrir konur til að hittast og spjalla.

Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsins og Marta Kristín verkefnastjóri KAON.

Þær sem hafa áhuga á að mæta í hópinn þurfa að hafa samband við skrifstofu félagsins með því að senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma 461-1470.

 

Dagsetningar

21. ágúst

4. og 18. september

2., 16. og 30. október

13. og 27. nóvember

11. desember