Kynheilbrigði og HAM - Námskeið

Kynheilbrigði og HAM

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis fer af stað með námskeiðið kynheilbrigði og HAM fyrir konur.

Fjallað verður um kynlífsvanda í kjölfar krabbameins og stuðst við grunnaðferðir HAM, núvitundar og slökunar til þess að vinna á þeim vanda.

Námskeiðið hefst fimmtudaginn 22. febrúar næstkomandi kl. 11:15 – 12:30.

Næstu tímar eru fimmtudagana, 1.mars, 8.mars og 15.mars.

Leiðbeinendur eru Regína Ólafsdóttir sálfræðingur og Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Hámark 10 manns, skráning og spurningar á netfangið reginaola@krabb.is eða í síma 461-1470 milli kl:13-16, fyrir 19. febrúar.