Fjarnámskeið: Langvinnar og síðbúnar aukaverkanir
Langvinnar og síðbúnar aukaverkanir
Fjallað verður um nokkra af algengustu síðbúnu/langvinnu fylgikvillunum sem geta komið fram í kjölfar krabbameins og krabbameinsmeðferðar.
Í kjölfar krabbameinsmeðferðar glíma margir við fylgikvilla sem ýmist má rekja til krabbameinsins eða krabbameinsmeðferðarinnar. Þessir fylgikvillar geta haft áhrif á andlega, líkamlega og félagslega heilsu.
Á námskeiðinu verður fjallað um nokkra af algengustu síðbúnu/langvinnu fylgikvillunum sem geta komið fram í kjölfar krabbameins og krabbameinsmeðferðar.
Þátttakendur fá meðal annars fræðslu um þreytu, svefn, hreyfingu, næringu, óttan við að greinast aftur, andlega líðan, minni, einbeitingu og streitustjórnun. Rætt verður um leiðir til að efla eigin heilsu og bæta líðan, auk þess sem þátttakendum gefst tækifæri til að hitta aðra í svipuðum sporum.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið krabbameinsmeðferð og finna fyrir síðbúnum eða langvinnum aukaverkunum. Miðað er við að sex mánuðir eða lengra sé liðið frá því krabbameinsmeðferð lauk.
Námskeiðið er fjarnámskeið og er í fjögur skipti: mánudagana 16., 23. og 30. nóvember og 7. desember kl. 13:00 - 15:30. Ekkert þátttökugjald.
Leiðbeinandi er Vigdís Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu ásamt fleirum.
Nánari upplýsingar: radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Þátttakendur fá tengil á námskeiðið sendan í tölvupósti áður en námskeiðið hefst.
Hægt verður að sitja námskeiðið í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, til að skrá sig má senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma: 461-1470.