Námskeið: Efling og vöxtur í kjölfar áfalla

Námskeið: Efling og vöxtur í kjölfar áfalla

Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða þýðingu það getur haft fyrir fólk að ná að eflast og vaxa eftir áföll og lífskreppur, eins og alvarleg veikindi og erfiðar persónulegar aðstæður.

Á námskeiðinu verður farið yfir hvað efling og vöxtur eftir áföll geta falið í sér fyrir þátttakendur auk hugsanlegra leiða fólks að slíkum vexti.

Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Námskeiðið samanstendur af fræðslu og umræðum, auk þess sem þátttakendur kortleggja í einrúmi mögulegar leiðir sem þau gætu farið til að eflast og vaxa eftir áföll.

Markmið námskeiðsins er að vekja fólk til umhugsunar um möguleika sína á því að eflast og vaxa og hvernig slíkur vöxtur getur haft jákvæð áhrif á líf viðkomandi og hans nánasta umhverfi.

 

Námskeiðið er í tvö skipti, miðvikudagana 4. og 11. febrúar, kl. 13-15 í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON) Glerárgötu 24, 3.hæð.

 

Leiðbeinandi: Hulda Sædís Bryngeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur PhD og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu.

 

Skráning og nánari upplýsingar er á kaon@krabb.is eða í síma 461-1470