Námskeið - Gott útlit - betri líðan

Námskeið - Gott útlit - betri líðan

Snyrtinámskeið ætlað konum sem eru í krabbameinsmeðferð eða hafa nýlega lokið henni.

Kristjana Rúnarsdóttir sérfræðingur frá Lancome leiðbeinir um förðun, umhirðu húðar og fleira.

Námskeiðið er eitt skipti og haldin verða tvö námskeið miðvikudaginn 14. október. Fyrri hópur kl. 10-12 og seinni hópur kl. 13-15.

Námskeiðið verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 24, 3. hæð.

Skráning í síma 461-1470 eða með því að senda á netfangið kaon@krabb.is. Gefa þarf upp fullt nafn, símanúmer og tölvupóst.

Ekkert þátttökugjald.

Terma bíður upp á námskeiðið Gott útlit - betri líðan.