Perlað af Krafti á Akureyri

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla armbönd laugardaginn 31. janúar kl. 13:00 í Menntaskólanum á Akureyri tilefni af vitundarvakningu félagsins.
 
Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fer í sölu núna í janúar og er hluti af okkar árlegu fjáröflunar- og vitundarvakningu.
 
Góðir gestir hjálpa okkur að halda uppi stuði, en þar má nefna Villa Bergmann Vandræðaskáld og Tinnu Óðins sem gerði garðinn frægan í Söngvakeppninni!

Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum