Skapandi Handverk og spjall

Hópurinn hittist annan hvorn fimmtudag kl.13:30 á Majó í Menningarhúsinu Hofi, 2. hæð.

Konurnar koma gjarnan með handverk en margar mæta einfaldlega til þess að njóta félagsskaparins og kaffisopans.

Fyrsti hittingur er 10. september.

Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta.

Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.

Dagsetningar: nánar auglýst síðar!