Vatnslitanámskeið með Jónu Bergdal
15. apríl kl. 13:00-15:00
Hópastarf
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður upp á Vatnslitanámskeið með Jónu Bergdal myndlistakonu.
Námskeiðið er byrjendanámskeið þar sem fyrsti tími er fræðsla og kennsla í flæði í vatnslitum og í seinni tíma er búin til mynd.
Tímasetning: 15. og 22 . apríl, kl. 13:00-15:00.
Staðsetning: KAON, Glerárgata 24, 3. Hæð.
Skráning: Hægt er að skrá sig hér eða hafa samband við félagið.
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem eru í krabbameinsmeðferð eða eru í endurhæfingu.
Námskeiðið er styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins.
