Afmælisráðstefna: Krabbamein á Íslandi árið 2021 - horft til framtíðar

Afmælis­ráðstefna: Krabba­mein á Íslandi árið 2021 - horft til framtíðar

70 ára afmælisráðstefna Krabbameinsfélags Íslands fer fram fimmtudaginn 26. ágúst kl. 16:30 - 18:45 í Háskólanum í Reykjavík.

Á ráðstefnunni verður fjallað um krabbamein á Íslandi í víðu samhengi, með hliðsjón af markmiðum Krabba­meinsfélagsins um að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem lifa og bæta lífsgæði sjúklinga og aðstandenda.

Streymi

Ráðstefnunni verður streymt í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.