Bleika slaufan 2022- Sýnum lit

 

Allur ágóði Bleiku slaufunnar 2022 rennur til fjölbreyttar starfsemi Krabbameinsfélagins svo hægt sé að vera til staðar fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur, til að stunda öfluga fræðslu og forvarnir auk fjölbreytts rannsóknarstarfs.

 

Bleika slaufan í ár er hönnuð af Helgu Friðriksdóttur og Orra Finnbogasyni hjá Orrifinn Skartgripum og er seld til 20. október 2022.

 

Sýnum lit - sýnum samstöðu

Í ár vekjum við athygli á að það er ýmislegt sem hver og einn getur gert til að draga úr líkum á krabbameinum. Sérstaklega minnum við á mikilvægi skimana fyrir krabbameinum. Ár hvert bjarga skimanir fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstum lífi fjölda kvenna. Þau gætu þó verið fleiri því stór hópur mætir ekki reglulega í skimun. Við hvetjum konur til að bóka tíma þegar þær fá boð. Því fyrr sem krabbamein eða forstig þess greinist því betri eru horfurnar.


Með kaupum á Bleiku slaufunni átt þú þátt í að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem lifa af og bæta lífsgæði þeirra.


Takk fyrir stuðninginn. Þitt framlag skiptir máli.