Bleikur október á N4 - klukkutíma þáttur

Í kvöld, 7.nóvember ætla N4 Sjónvarp að sýna klukkutíma þátt, þar sem þau hafa tekið saman allt það efni sem þeir gerðu í “Bleikum október á N4”.

Meðal annars viðtöl úr föstudagsþættinum við starfsfólk KAON, viðtal við Helgu Hafsteinsdóttur, leghálskoðun og brjóstaskimun á Sak og margt fleira.

Við hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis erum ótrúlega þakklát og ángæð með þessa frábæru og fræðandi umfjöllun sem N4 hafa sýnt málefninu í október. Endilega stillið á N4 kl.20:00 í kvöld.