Brúðhjón gáfu Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis gjöf

Við þökkum stuðninginn!
Í gær komu hjón, ásamt barni sínu og fengu sér kaffi með okkur. Hjónin, sem nýlega gengu í hjónaband, höfðu óskað eftir að fá pening í brúðkaupsgjöf eða vörur af vefverslun krabbameinsfélagsins.

Hjónin færðu Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis veglega peningagjöf. Þetta gerðu hjónin til að heiðra minningu föður og afa brúðgumans. Þau óskuðu eftir að nöfn þeirra yrðu ekki gefin upp. Við sendum þeim innilegar þakkir fyrir veittan stuðning og óskum þessu unga pari alls hins besta í framtíðinni.