Dagskráin í Bleikum október
Dagskráin í Bleikum október
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis veitir fólki sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra fjölbreytta þjónustu.
Félagið býður upp á stuðning og ráðgjöf í formi viðtala, skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Boðið er upp á fræðslu, fjölbreytt námskeið, heilsueflingu, jafningjastuðning í karla- og kvennahópum og ýmsa aðra viðburði.
Eirberg er með aðstöðu á skrifstofunni og sér hjúkrunarfræðingur um að aðstoða konur sem hafa farið í fleygskurð eða brjóstnám með ráðleggingar um gervibrjóst, brjóstahaldara og ermar til þess að meðhöndla sogæðabjúg.
Til að panta tíma í viðtal eða Eirbergsþjónustu er hægt að hringja í síma: 461-1470 eða senda póst á kaon@krabb.is
Dagskráin í október
1. október kl. 10:00 - Leshópur, fyrsti hittingur.
6. október kl. 17:00 - 18:30 - Fyrirlestur með Snæbirni - Áhrif veikinda á fjölskyldur.
7. október kl. 13:00 - 14:30 - Opið hús.
9 - 12. október - Dekurdagar á Akureyri.
14. október kl. 08:00 - 20:00 - Styrkleikar VMA og og nemendafélagsins Þórdunu.
15. október - Eirbergsdagur.
22. október - Bleiki dagurinn.
22. október kl. 16:20 - Nýtt yoga Nidra námskeið hefst.
22. október kl. 13:00 - 14:00 - Fjarnámskeið: Bætt rútína, betri svefn, betri líðan.
27. október kl. 13:00 - 15:30 - Fjarnámskeið: Síðbúnir fylgikvillar.
Yoga nidra er alla miðvikudaga kl. 16:20 - Skráning nauðsynleg
Gönguhópurinn Göngum saman gengur alla þriðjudaga kl. 17:00, upplýsingar um göngurnar má finna hér.
Hópastarf heldur áfram
Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir karlmenn. Hittingur fyrir karlmenn sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 10 skipti, annan hvern þriðjudag kl. 16.15. Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun og Marta Kristín KAON.
Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir konur. Hittingur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa nýlega lokið meðferð. Hópurinn mun hittast í 9 skipti, annan hvern fimmtudag kl. 16.15. Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsins og Marta Kristín KAON.
Skapandi handverk og spjall: Hópurinn hittist annan hvorn fimmtudag kl.13:30 á Kaffihúsinu í Menningarhúsinu Hofi, 2. hæð. Konurnar koma gjarnan með handverk en margar mæta einfaldlega til þess að njóta félagsskaparins og kaffisopans. Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.
Kátir karlar: Stuðningshópur fyrir karla sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist á laugardögum frá kl.13:00-15:00 í húsnæði Ferðafélags Akureyrar að Strandgötu 23. Það þarf ekki að skrá sig heldur er nóg að mæta. Sjálfboðaliði leiðir hópinn, nýir félagar velkomnir! Kaffi og spjall í góðum félagsskap.
*Birt með fyrirvara um breytingar.
Nánari upplýsingar um viðburðina má finna í viðburðardagatali félagsins hér.
Ekki hika við að hafa samband fyrir frekari upplýsingar s: 461-1470 eða á kaon@krabb.is
 
									