Dalvík og Ólafsfjörður

Þekkir þú starfsemi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis?

Starfsmenn frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis verða á Heilsugæslunni á Dalvík föstudaginn 26. maí milli kl.10:00-11:30 og á HSN Hornbrekku, Ólafsfirði föstudaginn 2. júní milli kl.10:00-11:30.

Hægt er að mæta til að fá upplýsingar um félagið og hvaða þjónusta er í boði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Þeir sem komast ekki en hafa áhuga á að fá upplýsingar geta hringt í félagið.

 

Kær kveðja starfsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis