Edda Björgvins, Húmor og hamingja - dauðans alvara!
Í tilefni af Bleikum október býður Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis upp á viðburð með Eddu Björgvins, Húmor og hamingja - dauðans alvara!
Öll viljum við öðlast hamingju! Húmor er einstakt tæki til að auka á hamingju okkar og það er mjög áhrifaríkt að beita húmor í samskiptum ef hann er rétt notaður. Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í ljós að húmor í daglegum samskiptum hjálpar fólki að takast á við allskonar uppákomur, leysa úr vandamálum og minnka streitu og húmor auðveldar einstaklingum að sjá jákvæðari hliðar lífsins. Ánægjan eykst þar sem fólk brosir og hlær saman. Að beita uppbyggilegum húmor styrkir einnig ónæmiskerfið og forvitnilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að húmor og hlátur lækni ótrúlegustu sjúkdóma. Góð heilsa er það sem flest okkar kjósum til að auka lífsgæði okkar. Við getum haft mikil áhrif á heilsufar okkar með því að rækta okkur sjálf og næra andann. Húmor er á allan hátt uppbyggilegur og nærandi.
Tímasetning: 22. október kl. 16:30.
Staðsetning: Menningarhúsið Hof.
Til að nýta sér boðið þarf að skrá sig hér og þá verða miðar á ykkar nafni á viðburðinum.
Eins er hægt að senda pósta á kaon@krabb.is eða hringja í síma: 461-1470, gefa þarf upp nafn, tölvupóst, og fjölda frímiða.
Allir velkomnir, hlökkum til að sjá ykkur!