Endurskinsmerki

Nú þegar hausta tekur og skammdegið skellur á minnum við alla á að nota endurskinsmerki, jafnt börn sem fullorðna. Í myrkrinu sjáumst við illa og er því notun endurskinsmerkja mjög nauðsinleg.

Við hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis höfum til sölu allskonar skemmtileg endurskinsmerki frá Sænska fyrirtækinu Popomax, það sérhæfir sig í skemmtilegum hágæða endurskinsmerkjum sem standast alla CE-öryggistaðla.

 

Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa þau á eftirfarandi stöðum:

-               Fremst á ermum

-               Hangandi meðfram hliðum

-               Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum

-               Á skólatöskum eða stígvélum.

 

 Verð: 790 krónnur stykkið.

 

Endilega kíkið við hjá okkur í Glerárgötuna og nælið ykkur í endurskinsmerki fyrir alla fjölskylduna. Opið mánudaga til fimmtudaga frá kl.13:00-16:00!