Félagsráðgjafi og opið hús

Miðvikudaginn 4. desember verður Harpa Ásdís félagsráðgjafi hjá ráðgjafarteymi Krabbameinsfélagsins hjá okkur á Akureyri.

Þeir sem hafa áhuga og geta nýtt sér þessa þjónustu er bent á að bóka viðtal í síma 461-1470 eða senda póst á kaon@krabb.is. Gefa þarf upp nafn og símanúmer.

Harpa sinnir félagsráðgjöf og hefur lokið viðbótarnámi í hugrænni atferlismeðferð og hefur mikla reynslu á að vinna með kvíða og þunglyndi.

Opið hús verður sama dag milli kl. 13:00 – 14:00. Hægt verður að spjalla við Hörpu félagsráðgjafa.

Kaffi, spjall og allir velkomnir