Fjarnámskeið: Núvitund og samkennd

Fjarnámskeið: Núvitund og samkennd

 

Á námskeiðinu verða kenndar ýmsar grunnæfingar í núvitund og samkennd, auk fræðslu, umræðna og heimaverkefna. Við lærum að tileinka okkur leiðir til að sýna okkur meiri mildi og skilning þegar eitthvað bjátar á í stað gagnrýni.

 

  • Leiðbeinandi er Anna Dóra Frostadóttir klínískur sálfræðingur.

 

Fjarnámskeiðið hefst þriðjudaginn 1. febrúar og er fimm skipti, vikulega á þriðjudögum
kl. 13:00-15:00. Ekkert þátttökugjald. 

Skráning á radgjof@krabb.is eða síma 800 4040