Fræðsluerindi um sogæðakerfið

Miðvikudaginn 8. apríl verður fræðsluerindi um sogæðakerfið með sjúkraþjálfurunum Þórdísi Úlfarsdóttur og Huldu Þorsteinsdóttur frá Bjargi Endurhæfingu. Í fræðslunni er farið yfir sogæðakerfið, hvað ber að hafa í huga og varast eftir krabbameinsmeðferð og kennsla í sjálfsnuddi.

Tímasetning: miðvikudaginn 8. apríl, kl. 12:00-14:00.

Staðsetning: KAON, Glerárgata 24, 3. hæð

Skráning: Hægt er að skrá sig hér eða hafa samband við félagið.

Fyrirlesturinn er styrktur af Velunnurum Krabbameinsfélagsins.