Frítt í Skógarböðin
30.09.2026
Mánudaginn 5. október ætla Skógarböðin að bjóða einstaklingum sem eru í þjónustu hjá okkur frítt í böðin. Þeir sem geta nýtt sér boðið eru einstaklingar sem eru með krabbamein eða hafa lokið meðferð á seinustu mánuðum. Boðsmiðarnir gilda fyrir einstaklinginn + einn aðstandanda en fleiri miðar verða í boði fyrir barnafjölskyldur.
Hvenær: 5. október, Skógarböðin eru opin frá kl. 10:00-23:30.
Hvar: Skógarböðunum.
Skráning: Til að fá boðsmiða þarf að skrá sig hér eða hafa samband við félagið.
Félagið þakkar Skógarböðunum kærlega fyrir stuðninginn, hann skiptir máli!