Fyrirlestur um Sáttar og atferlismeðferð, ACT með Ingu Dagný
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis bíður upp fyrirlestur um Sáttar og atferlismeðferð ACT í langvarandi veikindum með Ingu Dagnýju Eydal hjúkrunarfræðing hjá Heilsu og Sálfræðiþjónustunni. Í erindinu fjallar Inga Dagný um streitu í langvarandi veikindum og hvernig hægt er að nota ACT hugmyndafræðina til að auka seiglu og andlegt jafnvægi.
Tímasetning: Mánudaginn, 2. júní, kl.16:30-17:30
Staðsetning: Amtsbókasafnið
Skráning: Hægt er að skrá sig hér eða hafa samband við félagið.
Fyrirlesturinn gagnast öllum sem hafa þurft að kljást við langvarandi veikindi og aðstandendum.
Við hvetjum ykkur til að taka frá tíma fyrir ykkur sjálf og mæta, allir velkomnir.
Fyrirlesturinn er styrktur af Velunnurum Krabbameinsfélagsins.