Hádegisfyrirlestur í streymi: Auktu heilbrigðið með örfáum breytingum

Hádegisfyrirlestur í streymi: Auktu heilbrigðið með örfáum breytingum

Hádegiserindið er 17. janúar kl. 12:00-13:00.

Við ætlum að hafa streymi á skrifstofunni hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 34.

Steinar B. Aðalbjörnsson, íþróttakennari og næringarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu mun fjalla um hvernig hægt er að breyta mjög miklu í líðaninni með einungis örfáum breytingum í næringunni. Hann fer yfir tækifærin til bætinga sem eru lítil en samt svo stór og hvernig það getur haft mikil áhrif og orðið stökkpallur fyrir heilbrigðari lífsstíl.

Skráning á kaon@krabb.is eða í síma: 461-1470. Gefa þarf upp nafn og símanúmer.

 

Fyrir þá sem sjá sér ekki fært að mæta í hús er hægt að fá slóð á streymið og horfa heima, hér:  

 

Boðið upp á léttar veitingar. Þátttaka ókeypis og öll velkomin.