Hvíldarhelgi á Siglufirði 21. - 22. febrúar 2026 - FULLBÓKAÐ!
Hvíldarhelgi á Siglufirði 21. - 22. febrúar 2026
Athugið, ferðin er fullbókuð, en hægt er að skrá sig á biðlista!
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður upp á hvíldarhelgi á Siglufirði.
Helgin er fyrir einstaklinga sem eru með krabbamein eða hafa lokið meðferð á seinustu mánuðum, í boði er að taka með sér aðstandenda.
Áhersla er á að gefa fólki tíma til að hlaða batteríin og eiga notalega samverustund.
Innifalið
- Dvöl á Hótel Siglufirði í eina nótt.
- Miðdegishressing.
- Kvöldverður á laugardagskvöldinu.
- Morgunverðarhlaðborð.
- Aðgangur að heitum pott og sauna.
- Fræðsla.
Þátttökugjald er 5.000 krónur á mann.
Takmarkað pláss er í ferðina.
*Ferðin er háð þátttöku, ef ekki næst nægileg þátttaka verður ferðin feld niður.
Einstaklingar þurfa að koma sér sjálfir á staðinn en hægt er að hafa samband við félagið ef einhverjum vantar far.
Til þess að skrá sig er hægt að senda póst á kaon@krabb.is eða hringa í síma: 461-1470. Gefa þarf upp fullt nafn/nöfn, símanúmer og netfang. Frekari upplýsingar verða gefnar upp við skráningu.
