Jafningjastuðnings hópar hefjast
Jafningjastuðningur fyrir karlmenn
Hittingur fyrir karlmenn sem eru með krabbamein eða hafa lokið meðferð á seinustu mánuðum. Hópurinn mun hittast annan hvern þriðjudag á skrifstofu félagsins, Glerárgötu 24, kl. 16:15-17:45.
Fyrsti hittingur á nýju ári er þriðjudagurinn 13. janúar 2026.
Tækifæri fyrir karlmenn til að hittast og spjalla. Mjög vel tekið á móti nýjum í hópinn.
Umsjónaraðilar: Snæbjörn Ómar Guðjónsson sérfræðingur í geðhjúkrun og Marta Kristín verkefnastjóri KAON.
Þeir sem hafa áhuga á að mæta í hópinn þurfa að hafa samband við skrifstofu félagsins með því að senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma 461-1470.
Dagsetningar
13. og 27. janúar
10. og 24. febrúar
10. og 24. mars
21. apríl
5. maí
Nýr hópur: Jafningjastuðningur fyrir konur
Nýr hópur fyrir konur sem eru með krabbamein eða hafa lokið meðferð á seinustu mánuðum. Hópurinn mun hittast annan hvern fimmtudag á skrifstofu félagsins, Glerárgötu 24, kl. 13:30-15:00.
Fyrsti hittingur á nýju ári er fimmtudaginn 29. janúar 2026.
Umsjónaraðilar: Hulda Sædís hjúkrunarfræðingur PhD. og ráðgjafi Krabbameinsfélagsins og Marta Kristín verkefnastjóri KAON.
Þær sem hafa áhuga á að mæta í hópinn þurfa að hafa samband við skrifstofu félagsins með því að senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma 461-1470.
Dagsetningar
29. janúar
12. og 26. febrúar
12. og 26. mars
9. apríl
7. maí
Annað hópastarf sem hefur verið á dagskrá hjá félaginu mun halda áfram og verður auglýst síðar.
Við minnum á að Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis er flutt úr Glerárgötu 34 yfir í Glerárgötu 24, 3. hæð.