Karlajóga námskeið hjá Sjálfsrækt


Í tilefni af mottumars ætlar Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis að bjóða á karlajóga námskeið sem Sjálfsrækt er að fara af stað með í næstu viku.
Námskeiðið hefst 24. febrúar kl. 18:45 og verður 6 fimmtudaga í röð.

Greitt verður fyrir námskeiðið úr minningarsjóð Baldvins.

Tímarnir eru mjúkir og góðir, svo engin reynsla af yoga er nauðsynleg og getustigið er fyrir alla.

Skráning í síma 461-1470 eða í tölvupósti á kaon@krabb.is