Körfugerðarnámskeið - Myndir

Síðastliðinn fimmtudag kom handverkshópurinn okkar hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis saman og það var haldið körfugerðarnámskeið. Margrét Baldurs kenndi og margar flottar körfur voru búnar til. Sumir bjuggu til körfu, aðrir gerðu handavinnu eða drukku kaffi og spjölluðu.

Yndisleg stund og frábært að sjá ný andlit í hópnum.

Sjáumst aftur hress næsta fimmtudag.