Kótilettukvöld í tilefni Mottumars

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis ætlar að halda Kótilettukvöld þann 17.mars í tilefni Mottumars.
Boðið verður upp á skemmtiatriði, fræðslu, reynslusögu og happdrætti.
 
Oddur Bjarni verður veislustjóri og happdrættisvinningar eru ekki af verri endanum, til dæmis erum við með flug fyrir 2 til London frá Niceair, stóran vinning frá Bónstöð Jonna og gjafabréf frá Icelandair hotels og Geosea, ásamt mörgum öðrum vinningum.
 
Viðburðurinn verður haldinn á Vitanum og byrjar kl 18:30, en húsið opnar kl 18.
 
100 sæti í boði!
Miðaverð er að lágmarki 5000 kr.
Hægt er að panta miða með því að hringja í síma 461-1470 eða senda email á kaon@krabb.is.
 
Á staðnum verða einnig kynningabásar frá félaginu og Hörður verður hjá okkur að selja mottunælur úr gamalli mynt til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis.
Viðburðurinn er styrktur af Velunnarasjóð.
 
Vonandi sjáum við ykkur flest!