Kótilettukvöld í tilefni Mottumars

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis heldur Kótilettukvöld þann 23. mars í tilefni Mottumars.

Villi Vandræðaskáld verður veislustjóri kvöldsins og Guðrún Arngríms, Maja Eir og Halli taka lagið.

Happdrættið verður á sínum stað með glæsilegum vinningum.

Viðburðurinn verður haldinn á Vitanum, Strandgötu 53 og byrjar kl. 18:30, en húsið opnar kl. 18:00.

100 sæti í boði!
Miðaverð er að lágmarki 5.500 kr.
Hægt er að panta miða með því að hringja í síma 461-1470 eða senda tölvupóst á kaon@krabb.is.

Á staðnum verður einnig kynningabás frá félaginu.

Vonandi sjáum við ykkur sem flest!