Kraftur leitar að starfsmanni á Akureyri
Kraftur leitar að starfsmanni, í 30% starf til að hafa umsjón með NorðanKrafti sem er stuðningshópur fyrir unga krabbameinsgreinda (45 ára og yngri). NorðanKraftur er staðsettur á Akureyri á að þjónusta félagsmenn Krafts á því svæði og nágrenni. Hópurinn er samstarfsverkefni Krafts og KAON (Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis).
Helstu verkefni starfsmanns eru:
- Umsjón með starfsemi NorðanKrafts í samvinnu við framkvæmdastjóra og stjórnarmeðlims Krafts sem er staðsettur á Akureyri.
 - Koma að þróun á starfsemi NorðanKrafts með það að leiðarljósi að koma á móts við þarfir ungra krabbameinsgreindra og aðstandenda.
 - Umsjón með skipulagningu á viðburðum NorðanKrafts
 - Umsjón á viðburðum á vegum NorðanKrafts
 - Almennri upplýsingagjöf og þjónustu við félagsmenn á Akureyri og nágrenni.
 - Annast önnur tilfallandi verkefni sem rúmast innan starfshlutfalls starfsmanns.
 
Við leitum að starfsmanni með:
- Menntun sem nýtist í starfi
 - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
 - Góða samstarfshæfileika
 - Áhuga á málefnum ungra krabbameinsgreindra og aðstandenda
 - Ríka þjónustulund og samkennd
 - Góða tölvukunnáttu og reynslu í notkun samfélagsmiðla
 - Skilyrði er að viðkomandi sé reyklaus
 
Vinnutími:
30% starf sem unnið er að mestu á dagtíma. Viðburðir geta fallið utan eðlilegs dagvinnutíma.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts í síma 866-9600.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til hulda@kraftur.org.
Umsóknarfrestur er til og með 28.ágúst 2019
Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk á aldrinum 18-45 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Kraftur veitir félagsmönnum sínum andlegan, félagslegan og fjárhagslegan stuðning, miðlar upplýsingum um réttindi sjúklinga og aðstoðar þá við að komast út í lífið aftur eftir veikindin.