Kynning á samstarfi við Birtu og Sölku
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur hafið samstarf við Birtu og Sölku sem eru félagsmiðstöðvar á Akureyri fyrir öll sem eru 18 ára og eldri. Félagsmiðstöðvarnar eru hugsaðar sem virkniúrræði fyrir öll sem eru heima fyrir á daginn eins og þau sem eru í veikindaleyfi, öryrkja, fólk sem er án vinnu og eldri borgara.
Birta og Salka verða með kynningu á þeirra starfsemi og námskeiðum fyrir Krabbameinsfélagið fimmtudaginn 27. ágúst kl. 13:00-14:00 í Víðilundi 22. Starfsmenn félagsins verða á staðnum.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að nýta sér starfið að mæta!
Félagið mun í vetur bjóða upp á námskeið sem verða auglýst fljótlega og einnig verða hópar sem hittast í pílu, pútti og snóker.
Hér er hægt að kynna sér starfsemi Birtu og Sölku