Listnámskeið fyrir börn, 5-10 ára

Listnámskeið fyrir börn, 5-10 ára, með Hildi Elínar Sigurðardóttur.

Á námskeiðinu mun Hildur leiðbeina við gerð á skemmtilegum hlutum sem tengjast jólunum. Hver veit nema þarna verði til listmunir sem henta í jólapakkann?

Foreldrar eða ömmur og afar eru velkomin með. Setustofa er á staðnum þar sem hægt er að fá sér kaffi, piparkökur og þess háttar.

Námskeiðið er í tvö skipti og unnið verður að ólíkum verkefnum þessa 2 daga.

Dagsetningar eru: 28. nóvember frá 10:30-12:30 og 5. desember á sama tíma.

Námskeiðið verður í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 24, 3. Hæð.

Skráning er nauðsinleg, hægt er að senda póst á kaon@krabb.is eða hringja í síma 461-1470.