Málþing - Karlmenn og Krabbamein

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis býður til málþings fimmtudaginn 14. mars kl.16:00-18:00 undir yfirskriftinni: Karlmenn og krabbamein.

Markmið málþingsins er að fræða karlmenn um algeng einkenni krabbameina og er hluti af vitundarvakningu um krabbamein hjá karlmönnum.

Málþingið fer fram fimmtudaginn 14. mars kl. 16:00-18:00 í Hofi Akureyri.

Málþingið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu. Skráning á kaon@krabb.is

Vinnustaðir og vinahópar eru hvattir til að skrá sína menn og fjölmenna.

Málþingið – dagskrá

Karlakór Akureyrar – Geysir.
Opnunarávarp - Starfsmenn KAON.

Ásthildur Sturludóttir - Bæjarstjóri Akureyrar.

Krabbamein í karlmönnum, einkenni - Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurðlæknir.

Reynslusaga - Ingimar Jónsson.
Breytingar á sjálfsmynd karlmanna í veikindum - Dr. Ásgeir R. Helgason, dósent í sálfræði og sérfræðingur hjá KÍ.
Karlaklefinn - Guðmundur Pálsson, vefstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Fyrirspurnir og umræður.
Karlakór Akureyrar – Geysir.

Fundarstjóri: Friðbjörn Reynir Sigurðsson, Lyf- og krabbameinslæknir.

Ljósmyndasýningin Meiri Menn, sem unnin var í tengslumi við Mottumars, verður til sýnis á málþinginu.

Þeir sem að málþinginu koma eru Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, Krabbameinsfélag Íslands, Norðurorka, N4, Akureyrarstofa, JMJ Herradeild.

Hér má finna viðburðinn á facebook.

Hér má sjá viðtal við starfsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis í N4 í sambandi við málþingið og mottumars.

Málþinginu verður streymt beint í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.