Minnisnámskeið - einbeiting og minni

Minnisnámskeið verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 34, 2. hæð. 

Námskeiðið verður haldið 1.apríl, frá kl. 17-19 og er ætlað þeim sem hafa áhyggjur af minni sínu í kjölfar veikinda en einnig þeim sem vilja fræðast um minnið og læra að nýta sér mismunandi minnistækni.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum.

Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur.

 

Skráning á kaon@krabb.is eða í síma 461-1470

Ekkert þátttökugjald.