Mottumars sokkar 2019

Þessir glaðlegu Mottumars-sokkar verða seldir 1.-15. mars til styrktar starfsemi Krabbameinsfélagsins.


Í Mottumars vinnur Krabbameinsfélagið að því að auka þekkingu karlmanna á þeim einkennum sem gætu bent til krabbameina, að hvetja þá til að leita tímanlega til læknis ef ástæða er til og nýta sér ráðgjöf og stuðning, bæði sem sjúklingar og aðstandendur. 

 

Hönnuðurinn
Mottumars-sokkarnir 2019 eru hannaðir af Önnu Pálínu Baldursdóttur, nemanda í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Anna Pálína bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppni skólans og Krabbameinsfélagsins síðastliðið haust.

 

Sokkarnir eru fáanlegir hjá okkur í KAON Glerárgötu 34.

Eins eru þeir fáanlegir í öllum helstu verslunum á Akureyri, s.s. Bónus, Nettó, Hagkaup, Iceland, Pennanum og fleiri stöðum.