Munum að njóta stundarinnar!

Munum að njóta stundarinnar!  Perluarmböndin “lífið er núna” fást nú hjá okkur í Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Öll armböndin eru búin til af kröftugum sjálfboðaliðum og allur ágóði af armböndunum rennur beint til starfsemi Krafts.

Armböndin eru fáanleg í tveimur litum, íslensku fánalitunum og appelsínugult.

Verð: 2.000 kr. Endilega kíkið við hjá okkur í Glerárgötunni og nælið ykkur í armband :)