Næring í tengslum við krabbamein - fyrirlestur
Sara Mist Gautadóttir, yfirnæringarfræðingur Sjúkrahússins á Akureyri, heldur fræðslufyrirlestur um næringu í tengslum við krabbamein.
Gott næringarástand styður við krabbameinsmeðferð en það getur reynst áskorun að viðhalda góðu næringarástandi þegar aukaverkanir meðferða hafa áhrif á getu til þess að nærast.
Krabbameinsmeðferðum geta fylgt ýmsar næringartengdar aukaverkanir, svo sem lystarleysi, ógleði og uppköst, bragðskynsbreytingar o.fl. Mikilvægt er að uppfylla orku- og næringarefnaþörf í veikindum en farið verður yfir ýmis hagnýt ráð sem hægt er að grípa til á meðan meðferð og veikindum stendur.
Tímasetning: miðvikudaginn 30. september kl. 16:00.
Staðsetning: KAON, Glerárgata 24, 3. hæð.
Skráning: kaon@krabb.is eða í síma: 461-1470.
Erindið er styrkt af Velunnurum Krabbameinsfélagsins.
