Námskeið: Gott útlit - betri líðan

Námskeið: Gott útlit - betri líðan

Snyrtinámskeið ætlað konum sem eru í krabbameinsmeðferð.

Kristjana Rúnarsdóttir sérfræðingur frá Lancome leiðbeinir um förðun, umhirðu húðar o.fl.

Námskeiðið verður 6.október frá kl. 10:00-12:00. 

Námskeiðið verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, Glerárgötu 34, 2. hæð.

Takmarkaður fjöldi. Skráning á netfangið kaon@krabb.is eða í síma 461-1470. Gefa þarf upp fullt nafn og símanúmer.

Ekkert þátttökugjald.

þetta námskeið er í boði TERMU.