Nýtt húsnæði - Glerárgata 34 - 2. hæð.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis er flutt úr Glerárgötu 24 yfir í Glerárgötu 34, 2.hæð.

Í dag mánudaginn 24. september opnaði Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis á nýjum stað, Glerárgötu 34, 2.hæð.

Fyrir helgi mættu galvaskir iðnaðarmenn sem aðstoðuðu okkur með stóru og þungu hlutina. 

Bakaríið við Brúna gaf okkur svo veitingar ofan í mannskapinn. 

Fimmtudags handverkshópurinn mætti svo kl.13:00 á gamla staðinn og labbaði saman yfir í nýja húsnæðið og fengu sér kaffi og spjölluðu.

Við erum ótrúlega sátt og glöð með síðust daga og hlökkum til að halda áfram með starfsemina á nýjum stað. Eins þökkum við öllum sem hafa aðstoðað okkur síðustu daga kærlega fyrir hjálpina, hún er ómetanleg!

Verið velkomin.