Oddfellowstúkan Sjöfn styrkir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis

Á myndinni eru, frá vinstri: Einar Hjartarson Sjöfn, Maron Björnsson KAON, Pétur Jónasson KAON og Eg…
Á myndinni eru, frá vinstri: Einar Hjartarson Sjöfn, Maron Björnsson KAON, Pétur Jónasson KAON og Egill Áskelsson Sjöfn.

Oddfellowstúkan Sjöfn á Akureyri veitti Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis 700 þúsund króna styrk í tilefni af 70 ára afmæli félagsins fyrr á árinu.

Styrkurinn var afhentur í Regluheimilinu við Sjafnarstíg og sagði Einar Hjartarson formaður líknarsjóðsnefndar Sjafnar að Regludeildin hefði á undanförnum árum styrkt félagið með myndarlegum hætti, enda starfsemin afar mikilvæg

Pétur Jónasson stjórnarmaður í KAON þakkaði Sjöfn fyrir myndarlegan styrk og sagði hann koma að góðum notum.

Stjórn og starfsfólk Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis þakkar Oddfellowstúkunni Sjöfn kærlega fyrir stuðninginn.