Ólafsfjörður og Siglufjörður

Þekkir þú starfsemi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis?

Starfsmenn frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis verða HSN Hornbrekku, Ólafsfirði föstudaginn 2. júní milli kl. 10:00 - 11:30 og HSN Siglufirði, milli kl.13:00 - 14:00.

Hægt er að mæta til að fá upplýsingar um félagið og hvaða þjónusta er í boði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Þeir sem komast ekki en hafa áhuga á að fá upplýsingar geta hringt í félagið.

 

Kær kveðja starfsmenn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis