Opið hús

Opið hús

Miðvikudaginn 22. september kl. 15:00-18:00 verður opið hús hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og Heilsu og sálfræðiþjónustunni.

Fyrr á þessu ári flutti nýja fyrirtækið Heilsu og sálfræðiþjónustan inn til okkar að Glerárgötu 34 og deilir félagið nú húsnæðinu með þeim.

Heilsu og sjálfræðiþjónustan er miðstöð heilsueflingar. Hjá þeim starfar hópur fagfólks sem vinnur að því að bæta líðan og heilsu fólks.  

Hér má kynna sér starfseminna þeirra betur.

Félagið hlakkar til samstarfsins við þetta flotta og heilsumiðaða fyrirtæki og bjóðum við þau velkomin í húsnæðið með okkur.

Allir velkomnir sem vilja fagna þessum áfanga með okkur, léttar veitingar í boði!

r má finna viðburðinn á Facebook.

  • Finnir þú fyrir kvefeinkennum eða slappleika, ert í sóttkví eða einhver í kringum þig, biðjum við þig um að vera heima.
  • Við óskum eftir því að allir sótthreinsi hendur við komuna til okkar, sprittstandur er á veggnum á vinstri hönd þegar komið er inn.